Fréttir sem jafnvel sveitungar í norðurlandi eystri hafa beðið eftir eru loksins að verða að veruleika. Stefan Bonneau má allt eins búast við því að fá mínútur í kvöld í fyrsta skipti síðan hann sleit hásin í september sl. Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga staðfesti þetta í snörpu samtali við Karfan.is "Oddur bað hann um smá hjálp og Stefan fannst gott að heyra það. Ég geri ráð fyrir því að hann hvíli Odd í kvöld þegar þurfa þykir." sagði Teitur kíminn í samtali.
Njarðvík og Stjarnan heyja sína aðra orystu í einvígi liðanna í kvöld í Ljónagryfjunni og hefjast herlegheitin kl 19:15
Mynd: Kári Jónsson í stúkusæti að fylgjast með troðslu Bonneau