Rétt í þessu tryggði KR sér sæti í úrslitaeinvígi Dominos deildar karla með sigri á Haukum í leik fjögur í einvígi liðanna. KR var í bílstjórasætinu meirihluta leiksins en Haukar voru alltaf í skugganum og fyrir vikið voru lokamínúturnar æsispennandi.
Þetta er fimmta árið í röð sem KR er í úrslitaeinvíginu í Dominos deild karla og getur liðið náði í fimmta Íslandsmeistaratitilinn á fim árum. Andstæðingarnir verða Tindastóll og hefst einvígið þann 20. apríl eða næstkomandi föstudag á Sauðárkróki.
Karfan spjallaði við fyrirliða KR, Brynjar Þór Björnsson, eftir leik í DHL Höllinni.