Brynjar Þór Björnsson sem hefur verið nokkuð þéttur á miðlum í kyndingum stendur undir því öllu og fyrir þátt sinn í leik tvö milli KR og Hauka fær hann nafnbótina Lykilmaður leiksins. Brynjar skoraði 21 stig og sendi 8 stoðsendingar ásamt því að taka 5 fráköst. Valið stóð á milli þriggja leikmanna sem erfitt var að velja á milli en Brynjar tekur titilinn í þetta skiptið þar sem hann hefur verið að spila glimmrandi vel síðustu leikina fyrir KR liðið.