spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBreytingar í Grindavík

Breytingar í Grindavík

Grindavík hefur samið við Jordan Aboudou fyrir yfirstandandi tímabil í Bónus deild karla. Staðfesti félagið þetta með fréttatilkynningu fyrr í dag.

Jordan mun koma inn í liðið í stað Jadon Gigliotti sem hefur verið sagt upp störfum.

Jordan er 33 ára 201 cm franskur framherji/miðherji sem lengst af hefur leikið í heimalandinu.

Tilkynning:

Grindavík hefur borist góður liðsstyrkur fyrir seinni hlutann af Bónus-deildinni en félagið hefur samið við hinn franska Jordan Aboudou. Þá hverfur miðherjinn Ja­son Gigliotti frá störfum á sama tíma og þökkum við honum kærlega fyrir hans framlag til liðsins í vetur og óskum honum alls hins besta í næstu verkefnum.

Jordan er 201 cm á hæð og getur spilað bæði sem fjarki og fimma og leyst flestar stöður varnarmegin á vellinum. Hann er mikill háloftafugl og hatar ekkert að troða boltanum með látum eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Hann hefur leikið megnið af ferlinum í Frakklandi, bæði í efstu og næst efstu deild og lyfti franska meistaratitlinum með Chalon 2012. Þá á hann tugi leikja í Euroleague svo að það er ljóst að það kemur mikil reynsla inn í hópinn með Jordan, sem er fæddur árið 1991.

Við bjóðum Jordan hjartanlega velkominn til Grindavíkur og hlökkum til að sjá hann þreyta frumraun sína á vellinum gegn Valsmönnum á föstudaginn, þar sem við eigum sannarlega harma að hefna!

Fréttir
- Auglýsing -