spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaBretinn öflugi fylgir Njarðvík í Stapagryfjuna

Bretinn öflugi fylgir Njarðvík í Stapagryfjuna

Dwayne Lautier hefur framlengt samningi sínum við Njarðvík fyrir komandi tímabil í Bónusdeild karla. Staðfestir félagið þetta í fréttatilkynningu nú í kvöld.

Dwayne kom til Njarðvíkur um mitt síðasta tímabil og varð fljótt einn af betri leikmönnum deildarinnar. „Við lögðum mikla á áherslu á að fá Dwayne aftur til okkar enda sýndi hann og sannaði vel á síðasta tímabili hvers megnugur hann er. Þetta er frábær leikmaður og góður drengur og mun rífa áfram metnaðinn í klúbbnum okkar,” sagði Halldór Karlsson formaður Njarðvíkur.

Fréttir
- Auglýsing -