spot_img
HomeFréttirBreiðablik Íslandsmeistari í ungmennaflokki karla

Breiðablik Íslandsmeistari í ungmennaflokki karla

Breiðablik varð á dögunum Íslandsmeistari í ungmennaflokki karla eftir sigur gegn Haukum í úrslitaeinvígi 2-0. Fyrri leikinn vann Breiðablik heima í Smáranum áður en þeir tryggðu sér titilinn með öruggum sigri í Ólafssal 96-110. Þjálfari liðsins er Ívar Ásgrímsson.

Tölfræði leiks

Sölvi Ólason var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 26 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -