Bragi Hinrik Magnússon er hættur sem þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í Domino´s deildinni en þetta kemur fram á heimasíðu Grindvíkinga í kvöld.
Á heimasíðu Grindavíkur segir ennfremur:
Eftir stutt stopp hefur Bragi Hinrik Magnússon sagt upp störfum sem þjálfari Grindavíkurstúlkna. Bragi vildi ekki tjá sig um ástæðu uppsagnarinnar. Taldi það einungis eiga heima innan stjórnar KKD Grindavíkur.
Ellert Magnússon mun stjórna liði Grindavíkur annað kvöld þar sem Bragi er hættur.
Grindavík er á botni Domino´s deildar kvenna en liðið á enn eftir að finna sinn fyrsta sigur í deildinni. Bragi tók við liðinu í sumar en Grindvíkingar eru nýliðar þetta tímabilið í úrvalsdeild.