Þórsarar tóku á móti ÍR í Þórlákshöfn í 8. umferð Domino’s deildar karla. Það var þokkalega mætt í stúkuna og gaman að sjá stuðningsmenn ÍR leggja leið sína suður. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleiknum og munurinn fór aldrei yfir sex stig í hálfleiknum.
Munurinn á liðunum var eitt stig þegar lokafjórðungurinn hófst og eitt stig þegar fimm mínútur lifðu leiks. ÍR gerði svakalega vel á lokamínútunum en lokatölurnar gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum. Þórsarar reyndu ótímabær skot í restina og ÍR svöruðu með góðum körfum. Annar útisigur ÍR í vetur og báðir hafa komið gegn Þór.
Karfan spjallaði við þjálfara ÍR, Borche Ilievski, eftir leik í Icelandic Glacial Höllinni í Þorlákshöfn.