KKÍ hefur samið við Bónus um að verða einn af aðalstyrktaraðilum sambandsins og munu úrvalsdeildirnar bera nafn Bónus, en ásamt því mun Bónus styðja við landsliðs- og afreksstarf.
Samkvæmt fréttatilkynningu sambandsins mun markmið samstarfs KKÍ og Bónus vera að gera sýnileika Bónus sem mestan í körfuknattleik á Íslandi og hvetja almenning að versla heilsusamlegar vörur. Sérstök áhersla verður á ávexti og grænmeti ásamt öðrum vörum í Bónus og þannig efla lýðheilsu landsmanna enn frekar og mun Bónus því koma með ferska sýn inn í starfsemi KKÍ og körfuboltans á Íslandi.
Fyrsti leikur í Bónus deild kvenna á næsta keppnistímabli hefst 1. október og fyrsti leikur í Bónus deild karla 3. október
Á meðfylgjandi mynd frá vinstri eru þau; Baldur Ólafsson markaðsstjóri Bónus, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir formaður KKÍ, Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus og Hannes S. Jónsson framkvæmdastjóri KKÍ.