14:48
{mosimage}
(Verðlaunahafar fyrstu átta umferðanna í Iceland Express deild karla)
Leikstjórnandinn Bobby Walker, leikmaður toppliðs Keflavíkur í Iceland Express deild karla í körfuknattleik, var í dag kjörinn besti leikmaður fyrstu átta umferðanna í deildinni. Alls voru þrír frá Keflavík sem hlutu viðurkenningar í dag á hádegisfundi Körfuknattleikssambands Íslands þar sem úrvalsliðið var kunngjört ásamt því að velja besta dómara og þjálfara fyrstu átta umferðanna.
Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur var kjörinn besti þjálfarinn á fundinum og þá var Sigmundur Már Herbertsson útnefndur besti dómarinn en hann dæmir fyrir Njarðvík.
Úrvalslið fyrstu átta umferðanna var skipað eftirtöldum leikmönnum:
Bobby Walker – Keflavík, besti leikmaðurinn
Dimitar Karadzovski – Stjarnan
Páll Axel Vilbergsson – Grindavík
Jón N. Hafsteinsson – Keflavík
Óðinn Ásgeirsson – Þór Akureyri
Allir leikmennirnir hafa leikið átta deildarleiki og hefur Bobby Walker jafnan verið með hæsta framlag þeirra allra en hann gerir að jafnaði 22,6 stig að meðaltali í leik, tekur 4,9 fráköst, gefur 4,8 stoðsendingar og er með 84,6% vítanýtingu í þessum leikjum. Keflavík situr á toppi Iceland Express deildarinnar með fullt hús stiga eftir að hafa unnið átta deildarleiki í röð. Þeir mæta Tindastól á Sauðárkróki í kvöld en liðið mun ferðast með langferðabíl Norður ef veður leyfir. Það kemur í ljós síðar í dag hvort leiknum verði frestað eða hvort hann verði leikinn, það veltur á veðrinu.
Athygli vekur að þetta mun vera í fyrsta sinn sem hinn margreyndi og sigursæli þjálfari Sigurður Ingimundarson fær viðurkenningu sem þjálfari karlaliðs. Ótrúlegt en satt hefur Sigurður aldrei verið útnefndur þjálfari ársins.
Suðurnesjamenn voru fyrirferðamiklir í valinu en nýliðar Stjörnunnar og Þórs frá Akureyri áttu bæði sína fulltrúa. Dimitar Karadzovski hefur verið að leika vel fyrir Stjörnuna í vetur með 20,1 stig að meðaltali í leik. Þá var Óðinn Ásgeirsson frá Þór með 17,6 stig að meðaltali í leik.
Páll Axel Vilbergsson leikmaður Grindavíkur er með 18,8 stig að meðaltali í leik en gulir hafa leikið fantavel síðan þeir töpuðu illa gegn toppliði Keflavíkur í fyrstu umferð mótsins. Páll er skytta mikil og því kemur ekki á óvart að hann er með bestu vítanýtingu allra í úrvalsliðinu eða 86,2% vítanýtingu.
Ánægjulegt var að sjá Jón N. Hafsteinsson í úrvalsliðinu en hann er dæmi um leikmann sem lætur greipar sópa á vellinum án þess að mikið fari fyrir honum. Jón er límið i vörn Keflavíkur og ógnandi við körfuna á báðum endum vallarins. Jón er með 8,9 stig að meðaltali í leik og er að finna sig vel hjá Keflavík eftir að hafa um langa hríð verið að glíma töluvert við meiðsli.
Frétt af www.vf.is
{mosimage}
(Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur og Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður KKÍ)