spot_img
HomeFréttirBlikar gáfu bikarleik á Ísafirði

Blikar gáfu bikarleik á Ísafirði

Breiðablik hefur gefið leik sinn í bikarkeppni 11. flokks karla gegn KFÍ en leikurinn átti að fara fram á Ísafirði. Heimamenn fyrir vestan segja farir sínar ekki sléttar af væntanlegum gestum en þessi forföll eru fjarri því einsdæmi og afar algengt að lið boði forföll þegar þau eiga leik á Ísafirði. Karfan.is heyrði fyrir vikið í Sævari Óskarssyni formanni KFÍ sem sagði m.a. að svo mætti alls ekki fara að mót yngri flokka yrðu aðeins haldin á stöðum þar sem strætó gengur.
 
,,Enn og aftur gerist það, að íþróttafélag mætir ekki til leiks hingað vestur á Ísafjörð í skipulagðri keppni undir hatti KKÍ. Í þetta skipti er það lið Breiðabliks sem hefur gefið leik sinn gegn 11.flokki KFÍ í 16 liða úrslitum í bikarkeppni KKÍ. Ástæður engar gefnar, einungis símtal til yfirþjálfara KFÍ. Þetta er að verða kunnulegt á okkar slóðum að lið gefi leiki eða mæta hreinlega ekki til leiks. Árið á undan voru það lið ÍR, Keflavíkur og Ármanns sem ekki komu til leiks, það er snúið fyrir okkur að útskýra fyrir iðkendum og foreldrum þeirra hver ástæðan er fyrir þessu,” sagði Sævar og segir þetta vera hlut sem hreyfingin í heild sinni þurfi að skoða.
 
,,Við erum að leggja á okkur mikið starf til að halda úti barna og unglingaflokkum, þannig að það er orðið áhyggjuefni að KFÍ sé í þeim sporum að ferðast með iðkendur um langan veg í annan hvern leik, en fá svo ekki leiki endurgoldna hingað.   
 
Er þetta eitthvað sem hreyfingin í heild sinni þarf að skoða, er þetta það sem við viljum sjá þegar lið veljast á móti andstæðingi sem er í óheppilegri fjarlægð. Skilaboðin eru óþægileg sem felast í þessu, hreyfingin vill halda úti mótum sem ná til allra félaga innann KKÍ hvar svo sem þau eru staðsett, og það má alls ekki fara svo að þessi mót séu einungis innan þess svæðis sem hægt er að ferðast til í strætó,” sagði Sævar og segir þetta vanda sem félög óþægilega langt frá höfuðborginni lendi oft í.
 
,,Við vitum að þetta er ekki einungis hér fyrir vestan og ekki bundið körfunni einni. Þetta er vandi sem öll íþróttafélög sem búa óþægilega langt frá höfuðborgarsvæðinu lenda í. Nú er þessi spurning komin fram á ný hvað valdi þessu og verða félögin að svara á sinn hátt. Við höfum engin önnur svör en þau að þetta spari peninga, og ef svo er þá er uppi óþægileg staða í barna og unglingastarfi á landsbyggðinni.
 
KFÍ harmar það að fá ekki alla okkar leiki hingað til þess að hafa tækifæri til að sýna iðkendum, foreldrum, og íbúum hér heima, okkar keppnisfólk í leik og kappleikjum fyrir félagið sitt.” 
Fréttir
- Auglýsing -