Undir 16 ára lið Íslands lagði í kvöld Danmörku í næst síðasta leik sínum á Norðurlandamótinu í Kisakallio. Liðið hefur því unnið einn leik það sem af er móti og tapað þremur, en lokaleikur þeirra er á morgun gegn Svíþjóð.
Karfan spjallaði við Björgvin Huga Ragnarsson leikmann liðsins eftir leik í Kisakallio. Björgvin Hugi var aftur í liði Íslands eftir eins leiks fjarveru vegna ökklameiðsla, en hann skoraði 7 stig á aðeins tæpum 5 mínútum spiluðum gegn Danmörku í kvöld.