Meistararnir byrjuðu á góðum heimasigri gegn Grindvíkingum. KR liðið byrjaði vel og lenti aðeins einu sinni undir í leiknum. Stóru leikmenn KR reyndust gestunum erfiðir en Sigurður Þorvaldsson, Helgi Már Magnússon og Mike Craion gerðu nánast það sem þeir vildu í kringum körfuna. Þriggja stiga körfur þeirra Ingva Guðmundssonar og Arnars Björnssonar voru helsta vopn gestanna, en vopnin voru fleiri og beyttari hjá heimamönnum.
Karfan spjallaði við Björgvin Hafþór Ríkharðsson, leikmann Grindavíkur, eftir leik í DHL Höllinni.