Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers lögðu í gærkvöldi lið Central Missouri í bandaríska háskólaboltanum, 59-64.
Það sem af er tímabili hafa Bjarni og Fort Hays unnið ellefu leiki og tapað tveimur.
Á 13 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Bjarni 3 stigum, 3 fráköstum, stolnum bolta og vörðu skoti.
Næsti leikur Bjarna og Fort Hays er komandi laugardag 8. janúar gegn Lincoln.