Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers lögðu Northeastern State í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 59-53.
Bjarni og Fort Hays hafa farið einkar vel af stað þetta tímabilið, unnið tíu leiki og tapað aðeins einum til þessa.
Á 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Bjarni Guðmann 8 stigum, 3 fráköstum og stolnum bolta.
Næti leikur Bjarna og Fort Hays er þann 5. janúar gegn Rogers State.