Bjarni Guðmann Jónsson og Fort Hays State Tigers máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Northwest Missouri í bandaríska háskólaboltanum, 60-74.
Það sem af er tímabili hafa Fort Hays unnið ellefu leiki og tapað þremur.
Á 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Bjarni Guðmann 9 stigum, 2 stigum, stoðsendingu og stolnum bolta.
Næsti leikur Bjarna og Fort Hays er komandi laugardag 15. janúar gegn Missouri Western.