Þór lagði Grindavík heima á Akureyri fyrr í kvöld í Subway deild karla, 82-80. Eftir leikinn er Grindavík í 3.-4. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan að sigurinn var sá fyrsti sem að Þór vinnur á tímabilinu, en þeir eru þá í 12. sætinu með 2 stig.
Þór Tv spjallaði við Bjarka Ármann Oddsson þjálfara Þórs eftir leik í Höllinni, en hann fékk sigurinn í afmælisgjöf.