Birna Benónýsdóttir og Bingahmton Bearcats máttu þola tveggja stiga tap fyrir Hartford Hawks í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 59-57.
Eftir leikinn er Bingamton í 9. sæti American East deildarinnar með fjóra sigra og tíu töp það sem af er tímabili.
Á 37 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Birna 18 stigum, 3 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og 2 vörðum skotum, en hún var stigahæst sinna kvenna í leiknum.
Næsti leikur Birnu og Binghamton er þann 29. janúar gegn UMBC Retrievers.