Birna Eiríksdóttir hefur ákveðið að söðla um og segir nú skilið við Fjölni í Domino´s deild kvenna og er gengin í raðir Blika í 1. deild kvenna.
Birna er einn reyndasti leikmaður Fjölnisliðsins en hún er 32 ára gömul og hefur marga fjöruna sopið í boltanum. Vænlegur liðsstyrkur fyrir Blika sem sitja í 5. sæti 1. deildar kvenna með 6 stig.
Mynd úr safni/ Björn Ingvarsson – Birna með Fjölni í leik gegn KR.