Birna Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats lögðu New Hampshire Wildcats í gær í bandaríska háskólaboltanum, 49-60.
Eftir leikinn er Binghamton í 8. sæti American East deildarinnar með fjóra deildarsigra og þrettán töp það sem af er tímabili.
Á 18 mínútum spiluðum skilaði Birna 7 stigum, 3 fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og vörðu skoti.
Næsti leikur Birnu og Binghamton er þann 2. mars gegn UMBC Retrievers.