Birna Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats máttu þola tap í gærkvöldi fyrir Vermont Catamounts í bandaríska háskólaboltanum, 60-65.
Eftir leikinn er Binghamton í 8. sæti American East deildarinnar með þrjá deildarsigra og þrettán töp það sem af er tímabili.
Á 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Birna 22 stigum, 3 fráköstum, stoðsendingu og 2 vörðum skotum.
Næsti leikur Birnu og Binghamton er þann 26. febrúar gegn New Hampshire Wildcats.