spot_img
HomeFréttirBirna drjúg í tapi fyrir Stony Brook Seawolves

Birna drjúg í tapi fyrir Stony Brook Seawolves

Birna Valgerður Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats töpuðu í kvöld fyrir Stony Brook Seawolves í bandaríska háskólaboltanum, 52-61. Leikurinn sá þriðji sem Bearcats tapa á tímabilinu, en þær leita enn að sínum fyrsta sigri.

Birna lék 24 mínútur í leik kvöldsins. Á þeim skilaði hún 13 stigum, 2 fráköstum og 3 stolnum boltum. Bearcats leika aftur við Seawolves nú á sunnudagskvöldið 20. desember.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -