Birna Benónýsdóttir og Binghamton Bearcats máttu þola tap í gær fyrir Vermont Catamounts í bandaríska háskólaboltanum, 47-34.
Eftir leikinn er Binghamton í 9. sæti American East deildarinnar með einn sigur og níu töp í deildinni það sem af er tímabili.
Á 34 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Birna 15 stigum, 4 fráköstum, 2 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti.
Næsti leikur Birnu og Binghamton er þann 12. febrúar gegn New Hampshire Wildcats.