Skotbakvörður Boston Celtics, Jabari Bird, var í gærmorgun handtekinn í Brighton hverfi borgarinnar fyrir líkamsárás þar sem heimilisofbeldisteymi lögrelunnar var kallað út. Samkvæmt heimildum voru hann og meint fórnarlamb hans færð á sitthvorn spítalann í borginni til aðhlynningar, en honum síðan haldið fyrir árásina, frelsissviptingu og að hafa kyrkt fórnarlambið.
Statement from Boston PD on Jabari Bird: pic.twitter.com/kgi0ZBwqd3
— Nicole Yang (@nicolecyang) September 8, 2018
Celtics völdu Bird með 57. valrétt nýliðavalsins árið 2017, en þrátt fyrir að hafa ekki verið í lykilhlutverki hjá liðinu á sínu fyrsta tímabili, byrjaði hann þó einhverja leiki. Hafði hann þá staðið sig vel fyrir liðið í nýliðinni sumardeild í Las Vegas, þar sem hann skoraði 17 stig að meðaltali á um 57% skotnýtingu.
Samkvæmt yfirlýsingu er liðið upplýst um atburðinn og taka þeir honum alvarlega. Munu þeir þó bíða með að taka allar ákvarðanir þangað til öllum gögnum hefur verið safnað saman.