spot_img
HomeFréttirBikarúrslit yngri flokka fara fram í DHL höllinni um helgina

Bikarúrslit yngri flokka fara fram í DHL höllinni um helgina

8:35

{mosimage}

Bikarúrslit yngri flokka verða núna um helgina 10. – 11. mars. Þau verða haldin í DHL-Höll KR-inga. Keppt verður í 9. flokkum alls, frá 9. flokki og upp í Unglingaflokk í karla og kvennaflokki.

5 leikir verða á laugardeginum og 4 leikir á sunnudeginum og hefst fyrsti leikur klukkan 10:00 báða dagana. KR-ingar munu halda mótið og leggja þeir mikinn metnað í að hafa umgjörðina sem glæsilegasta og á heimasíðu þeirra er að finna ítarlega umfjöllun um helgina.

Þessi helgi er einn af hápunktunum í yngri flokkunum þar sem að margir af efnilegustu leikmönnum landsins í karla og kvennaflokkum stíga á stokk.

Dagskrá helgarinnar verður svona:

Laugardagur 10. mars

10:00 9. flokkur drengja Hamar/Selfoss – Fjölnir

12:00 10. flokkur stúlkna UMFH – Haukar

14:00 11. flokkur drengja KR – Fjölnir

16:00 Stúlknaflokkur Keflavík – Haukar

18:00 Unglingaflokkur karla Njarðvík – Fjölnir

Sunnudagur 11. mars

10:00 9. flokkur stúlkna Haukar – Hamar/Selfoss

12:00 10. flokkur drengja Fjölnir – Fjölnir B

14:00 Unglingaflokkur kvenna Haukar – Keflavík

16:00 Drengjaflokkur Keflavík – FSu

www.kki.is

Mynd: karfan.is

Fréttir
- Auglýsing -