spot_img
HomeFréttirBikarleikur KR og Keflavíkur færður til morgundagsins

Bikarleikur KR og Keflavíkur færður til morgundagsins

Í tilkynningu frá KKÍ sem barst rétt í þessu segir að búið sé að færa bikarleik KR og Keflavíkur yfir á morgundaginn en fyrirhugað var að leikurinn færi fram í kvöld.
Leikurinn á morgun fer sem fyrr fram í DHL Höllinni í vesturbænum og hefst kl. 14:00 en þetta er leikur í 8-liða úrslitum Poweradebikars kvenna.
 
 
Breyta varð leiktímanum vegna tvíbókunar í DHL Höllinni.
 
Mynd/ Helga Einarsdóttir og liðsfélagar í KR verða að bíða til morguns eftir heimsókn Keflavíkurkvenna.
Fréttir
- Auglýsing -