spot_img
HomeFréttirBetur fór en á horfðist hjá Jóni

Betur fór en á horfðist hjá Jóni

Fjölnismaðurinn Jón Sverrisson kom lítið við sögu í leik Stjörnunnar og Fjölnis í kvöld en hann meiddist snemma og lék ekkert meira með. Í fyrstu var óttast að hann hefði slitið krossbönd eða annað slíkt af slæmum toga.
 
Samkvæmt heimildum Karfan.is er Jón líklegast aðeins tognaður og verður því frá næstu tvær vikurnar að minnsta kosti sem þó er mikill missir fyrir Fjölnismenn. Þeir geta þó huggað sig við að Christopher Smith fær leikheimild á næstunni og ekki vanþörf á því hjá gulum að þétta teiginn.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -