Undir 20 ára karlalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Matosinhos í Portúgal. Í dag tapaði liðið fyrir Hollandi með 19 stigum, 68-87, í umspili um 5.-8. sæti á mótinu.
Fréttaritari Körfunnar í Portúgal spjallaði við leikmann Íslands, Bergvin Eini Stefánsson, eftir leik í Matosinhos.