10:54
{mosimage}
Það er orðið töluvert síðan maður henti í einn pistil hér á karfan.is. Eins og ég sagði í fyrra þá saknar maður áranna í blaðamennskunni og þessir pistlar hafa hjálpað mér við að glíma við þann söknuð. Þó það væri ekki nema til að halda áfram að benda körfuboltaáhugamönnum, og öðrum sem hafa nennt að lesa þessa pistla, á alla þá efnilegu krakka sem við eigum.
Mig minnir að síðasti pistill sem ég skrifaði hafi komið um áramótin. Það hefur margt gerst síðan þá. Eftir mikil læti og mótmæli voru þáverandi ráðamenn bornir út af Alþingi og vinstri stjórn tekin við. Sjálfur átti ég aldrei von á því að vera bendlaður við vinstri kantinn en eftir alla spillinguna sem hefur viðgengist hjá þeim bláu gat ég ekki kosið þá. Það er skrítið í dag að styðja flokka sem maður á enga hugmyndafræðilega samleið með nema að hluta til. En ég kýs frekar heiðarlegt fólk en spillta tækifærissinna. Svo voga þingmenn sjálfstæðisflokks og framsóknarflokks sér að gagnrýna núverandi ríkissjórn. Vissulega er hægt að gagnrýna þessa ríkisstjórn en ég veit ekki hvort þessir tveir flokkar sem ég nefndi geti gert það með góðu móti. Ef að ég væri búinn að fara með KR liðið úr því að vera að berjast um alla titla í IE-deildinni niður í 2. deild þar sem við værum með lakari liðum, gert KR gjaldþrota í leiðinni, komin væru upp mörg spillingarmál og siðlaus athæfi væru að poppa upp á degi hverjum – væri ég í einhverri aðstöðu til að gagnrýna þann þjálfara sem væri tekinn við af því að ég var borinn út eftir að hafa neitað að segja af mér. Nýr þjálfari sem myndi reyna að byggja KR-liðið upp aftur fengi ábyggilega sinn skerf af gagnrýni sem fylgir starfinu en ég hefði allavega rænu á því að halda mér saman og ég held að þessir tveir flokkar sem hérna stjórnuðu sem lengst ættu að fara varlega í sína gagnrýni.
IE-deildin var glæsileg síðasta vetur og fengum við oddaleik hjá bæði konum og körlum eftir mikla spennu og dramatík. Síðasta sumar gekk mikið á á leikmannamarkaðinum hjá körlunum en allt var rólegt hjá stelpunum. Þetta virðist hafa snúist við núna og nokkur stór leikmannaskipti hafa átt sér stað í IE-deild kvenna. Það er þó nóg eftir af sumrinu og ýmislegt sem getur gerst áður en deildarnar fara af stað.
Úrslitakeppnin hérna heima var frábær og ekki var hún síðri í NBA. Margir magnaðir leikir og einhverjir fara í sögubækurnar. Stöð2 Sport setti met í fjölda leikja í beinni útsendingu og var atvinnulífið á Íslandi nánast í lamasessi í maí og hálfan júní þar sem starfsmenn og kúnnar voru ekki að mæta fyrr en um hádegi eftir langar og strangar NBA nætur. Svo var auðvitað alveg týpískt að leikirnir á virkum dögum fóru alltaf í framlengingu og stundum fjórar á meðan leikirnir um helgar kláruðust í venjulegum leiktíma þegar fólk var í fríi daginn eftir. Það var síðan Los Angeles Lakers sem stóðu uppi sem sigurvegarar þetta árið. Eftir að hafa tapað nokkuð illa fyrir Boston Celtics fyrir ári síðan í úrslitum skein einbeitingin úr hverju andliti Lakersmanna og engin var einbeittari en stjarna liðsins, Kobe Bryant. Kobe var hreinlega magnaður og gerði allt sem hann þurfti til að drífa liðið áfram. Það þurfti NBA titil til þess að fá Spánverjan Paul Gasol til að brosa en hingað til hefur Gasol látið gömlu goðsögnina Robert Parish líta út sem stuðbolta í samburði við sig. Ég hef meira að segja átt hjólkoppa sem hafa haft meiri útgeislun en Gasol.
Núna er sá árstími þegar fótboltinn tröllríður öllu íþróttalífi. Ég er mikill knattspyrnuáhugamaður en hef aldrei farið í það að bera saman körfubolta og fótbolta. En mikið öfunda ég fótboltann á þættinum Pepsimörkin. Þvílíkur snilldarþáttur sem ég missi aldrei af. Þeir Tómas Ingi og Maggi Gylfa, eru ekki að skafa af því eða tala í kringum hlutina heldur segja bara það sem þeim finnst. Maggi þjálfaði mig einu sinni í körfubolta hjá KR og var sjálfur í körfu á sínum tíma. Veit ekki með körfuboltahæfileika Tómasar Inga. Svona samantekt eftir hverja umferð er gulls í gildi. Maður lætur sig dreyma um að karfan fái einhvern daginn svona þátt. Það yrði það besta sem gæti gerst fyrir körfuna. Veit samt ekki hvort dómarastéttin sé jafn spennt fyrir svona þætti. Viðtölin við menn strax eftir leik þegar allt adrenalínið og allar tilfinningarnar eru í hámarki, allt beint í æð rétt eftir leik. Viðtalstækni þjálfara Fram er þó sérstaklega athygliverð. Hann virkar á mann jafn líflegur og leikstíll og skemmtanagildi Fram liðsins. Efast um að hann sé að fá mörg tilboð um að vera veislustjóri hjá einstaklingum eða fyrirtækjum út á þessi viðtöl. Engu að síður hæfur þjálfari sem hefur gert góða hluti hjá Fram. Mínir menn í KR eru í ágætis málum og eru að berjast um 2. sætið á eftir FH ásamt nokkrum öðrum liðum. Vantar aðeins meiri stöðuleika í liðið til að geta ógnað FH að einhverju leiti. Eini sem hefur sýnt virkilega mikinn stöðuleika er Prince Rajkomar en hann hefur verið mjög stöðugur í því að skora ekki. Eftir 12 leiki í deild og einhverja leiki í bikar er hann ennþá með fleiri eyru en skoruð mörk sem getur ekki talist gott fyrir framherja. Framherjar eru dæmdir af mörkunum sem þeir skora. Það er þó jafn algengt að hann sé dæmdur rangstæður og Garðar Örn Hinriksson lyftir upp gulu og rauðu spjöldunum. Hann á samt ábyggilega eftir að snúa þessu við enda hæfileikaríkur leikmaður.