Benedikt Guðmundsson fráfarandi þjálfari Þór Ak var meðal gesta í Sportþættinum á FM suðurlandi þessa vikuna. Hann segir frá árunum á Akureyri, Tryggva Snæ og ræðir Dominos deildirnar sem einmitt kláruðust á dögunum. Hann segir stuttlega frá næstu skrefum sínum sem hann segir að gætu skýrst á næstu dögum.
Viðtal Gests Einarssonar frá Hæli við Benedikt má finna í heild sinni hér að neðan. Sportþátturinn er í loftinu öll mánudagskvöld þar sem rætt er um íþróttir og meðal annars körfubolta. Þáttur sem engin íþróttaáhugamaður ætti að missa af.