Ísland mátti þola tap í kvöld fyrir Grikklandi í næstsíðasta leik sínum í undankeppni EuroBasket 2021, 58-95. Eftir fimm leiki í riðil A leitar Ísland enn að fyrsta sigrinum á meðan að Grikkland hefur unnið þrjá og tapað tveimur.
Karfan spjallaði við Benedikt Rúnar Guðmundsson, þjálfara liðsins, eftir leik í Ljubljana, en næsti leikur þeirra er komandi laugardag 6. febrúar gegn heimakonum í Slóveníu.