Tindastóll lagði Njarðvík í kvöld í tvíframlengdum öðrum leik undanúrslita Subway deildar karla. Fyrsta leik einvígis liðanna vann Tindastóll í Ljónagryfjunni fyrir helgi 79-84 og eru Stólarnir því komnir með 2-0 forystu eftir kvöldið, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig í úrslitin.
Karfan spjallaði við Benedikt Guðmundsson þjálfara Njarðvíkur eftir leik í Síkinu.