LSU háskólinn tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn Marquette háskólanum 81-80 í Barclays Center í gærkvöldi. Ástralska undrið Ben Simmons lét þó ekki sitt eftir liggja og skoraði 21 stig og tók 20 fráköst í leiknum. Þrátt fyrir þessa frammistöðu var Simmons gagnrýndur fyrir að gefa boltann í erfitt þriggja stiga skot í lok leiksins í stað þess að klára þetta sjálfur.
Mörg NBA lið keppast um að ná sem verstum árangri í þessari deildarkeppni til þess að komast ofarlega í næsta nýliðaval þar sem búist er við að Simmons verði þar í boði.