Undir 16 ára lið Íslands leikur þessa dagana á evrópumótinu í Podogorica í Svartfjallalandi.
Í dag kl. 11:30 leika þeir sinn fyrsta leik í riðlakeppninni gegn Sviss. Ísland leikur í C-riðli með heimamönnum frá Svartfjallalandi, Danmörku, Sviss, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi. Eftir leiki í riðlinum taka svo við leikir í úrslitum og um sæti. Tvö efstu liðin í hverju riðli fara beint í 8-liða úrslit.
Frekari upplýsingar, liðskipan og lifandi tölfræði er að finna á heimasíðu mótsins hér.
U18 drengja á EM er þannig skipað:
Alexander Óðinn Knudsen · KR
Aron Ernir Ragnarsson · Hrunamenn
Bragi Guðmundsson · Grindavík
Eyþór Orri Árnason · Hrunamenn
Friðrik Heiðar Vignisson · Vestri
Hjörtur Kristjánsson · Breiðablik
Ísak Júlíus Perdue · Þór Þorlákshöfn
Ísak Örn Baldursson · Snæfell
Ólafur Ingi Styrmisson · Fjölnir
Orri Gunnarsson · Stjarnan
Örvar Freyr Harðarson · Tindastóll
Sófus Máni Bender · Fjölnir
Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari
Skúli Ingibergur Þórarinsson aðstoðarþjálfari
Atli Aðalsteinsson aðstoðarþjálfari
Davíð Örn Aðalsteinsson sjúkraþjálfari
Jóhannes Páll Friðriksson FIBA dómari á mótinu