Í dag kl. 16:45 leikur undir 20 ára kvennalið Ísland sinn þriðja leik í umspili gegn Rúmeníu um sæti 9-18 á Evrópumótinu í Makedóníu. Síðustu tveir leikir liðsins í umspilinu hafa verið flottir, unnu Kósovó nokkuð örugglega í fyrradag og kjöldrógu Króatíu svo í gær.
Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði
Hérna er 12 leikmanna lokahópur undir 20 ára liðs kvenna
Leikurinn verður líkt og aðrir leikir mótsins sýndur í beinni vefútsendingu FIBA, en hana er hægt að nálgast hér fyrir neðan.