spot_img
HomeFréttirBattle Groups Iceland verður í Smáranum í sumar

Battle Groups Iceland verður í Smáranum í sumar

Battle Groups er 90 mínútna æfing í keppnishópum sem samanstendur af SSG. SSG stendur fyrir Small Sided Games sem að inniheldur 1 á 1, 2 á 2, 3 á 3, 3 á 2 osfv.

Spil með SSG leyfir leikmönnum að hámarka þáttöku sína í bæði sókn og vörn. Meiri ákvörðunar taka=meiri bætingar. Þessar æfingar munu hjálpa leikmönnum að lesa leikinn þar sem þau eru sett í leiklíkar aðstæður stöðugt.

Yfirþjálfara æfingana eru þau Danielle Rodriguez og Mikael Máni. Æfingarnar eru í boði fyrir 2012 módel og eldri. Við hvetjum alla til að skrá sig á þessar æfingar.

Næsta æfing er kl. 17, 19. júni og kostar 1000 kr að prófa eina æfingu en annars er verðið fyrir Júní mánuðinn er 2.500 kr.

Allar upplýsingar er hægt að fá inn á Instagram reikningnum @battlegroups_iceland.

Hérna er hægt að skrá sig

Fréttir
- Auglýsing -