spot_img
HomeFréttirBarry tapaði naumlega í úrslitaleiknum

Barry tapaði naumlega í úrslitaleiknum

Annað árið í röð tapa Barry University úrslitaleiknum um SSC meistaratitilinn. Í þetta skiptið var það Eckerd sem tók titilinn með 87:84 sigri í Ici höllinni í Daytona. Örþrifa þristur á loka sekúndunni vildi ekki niður til að koma leiknum í framlengingu fyrir Barry og því silfur annað árið í röð.  Barry byrjaði leikinn ekki vel og voru undir með 10 stigum í hálfleik. Elvar Friðriksson skoraði 9 stig og sendi 8 stoðsendingar á félaga sína sem dugðu því miður ekki að þessu sinni og grátlegt tap fyrir þá Barry menn. 

 

Tímabilinu er alls kostar ekki lokið hjá Elvari því Barry University halda nú í Tournament-ið (svo við slettum aðeins) í 2. deildinni og mæta þeir þar liði Rollins en spilað er í Huntsville í Alabama fylki. Leikurinn er á laugardaginn nk. Þetta er þriðja árið í röð sem Barry fer í þessa keppni og í 6. skiptið í heildina. 

 

Fréttir
- Auglýsing -