Tindastóll tapaði gegn Skallagrím í kvöld þegar liðin mættust í Síkinu í Skagafirði í leik sem frestað var í 5. umferð Domino´s deildarinnar fyrr á þessari leiktíð. Kári Marísson ræddi við Bárð eftir leik en snarpur hluti úr viðtalinu var birtur í 10 fréttum Rúv í kvöld.
Í viðtalinu spurði Kári hvort ekki væri farið að hitna undir þjálfara Tindastóls og við það svaraði Bárður: ,,Það held ég að hljóti að vera.”
Tindastólsmenn eru sem fyrr á botni deildarinnar, með 4 stig eftir 11 leiki.