8:03
{mosimage}
Bárður Eyþórsson sem þjálfað hefur lið ÍR það sem af er vetri hefur sagt starfi sínu lausu. Hann stýrði ekki liðinu í leik þess gegn Fjölni í Grafarvogi í gær og voru það þeir Jón Örn Guðmundsson og Halldór Kristmannsson sem stjórnuðu skútunni í gær.
Samkvæmt heimasíðu ÍR var mikil ánægja með störf Bárðar hjá ÍRingum en hann valdi að hætta af persónulegum ástæðum.
Heimasíða ÍR: http://www.ir-karfa.is/
Mynd: karfan.is