spot_img
HomeFréttirBandarískur háskólaboltaþjálfari á leiðinni til Íslands

Bandarískur háskólaboltaþjálfari á leiðinni til Íslands

{mosimage}
(Jeff LaMere)

Bandarískur hákskólaboltaþjálfari er á leiðinni til Íslands til að taka þátt í körfuboltabúðum Ágústs Björgvinssonar í næstu viku.

Jeff LaMere er búinn að vera aðstoðarþjálfari VCU Rams síðustu fjögur ár og var einnig hluti af þjálfarateymi hins virta og fræga Duke-háskóla þar sem hann tók þátt í að gera Duke að háksólameisturum árið 2001. Duke vann 188 af 216 leikjum sínum á meðan Lamere aðstoðaði Mike Krzyzewski, einn virtasta og besta þjálfari heims en Krzyzewski hefur nú líka tekið að sér þjálfun bandaríska landsliðsins í körfubolta.

"Ég er ótrúlega spenntur fyrir því að vera á leiðinni til Íslands og þetta verður örugglega mjög skemmtileg ferð. Gústi er búinn að koma fjórum sinnum til mín til Duke og það er gaman að geta einu sinni launað honum greiðann og hjálpað honum í hans búðum. Ég kynntist Gústa vel þegar hann kom til okkar og hann hefur í þessum ferðum frætt mig um íslenskan körfubolta. Nú fæ ég tækifæri til þess að koma sjálfur og sjá með eigin augum hvað er að gerast í körfunni á Íslandi," sagði Jeff Lamere í gærkvöldi um fyrirhugaða ferð sína til Íslands.

Það má finna meiri upplýsingar um Jeff LaMere á heimasíðu VCU Rams en hann hefur auk Duke og VCU þjálfað hjá Delaware-skólanum. Lamere hefur mjög sterk tengsl við Duke, er sjálfur útskrifaður úr skólanum og var yfirmaður körfuboltamála í Duke frá 1997 til 2002. LaMere hefur líka mikla reynslu af Körfuboltabúðum og rak hinar virtu Körfuboltabúðir í Duke í sex ár. Þær búðir eru mjög vinsælar og sem dæmi er alltaf uppselt í búðirnar eitt ár fram í tímann.

Heimasíða VCU http://vcurams.vcu.edu/mbb/lamerecoach.htm

Fréttir
- Auglýsing -