7:50
{mosimage}
Bandaríkjamenn eru greinilega ákveðnir í því að sýna heiminum hvar vagga körfuboltans er. Í gær fór fram önnur umferð á Ameríkumótinu og tóku heimamenn í Bandaríkjunum á móti liði Virginíueyja og sigruðu 123-59. Carmelo Anthony og Michael Redd voru stigahæstir Bandaríkjamanna með 22 stig en Kevin Sheppard skoraði mest fyrir Virginíueyjar, 11 stig.
Önnur úrslit í gær urðu þau að Argentína vann Uruguay 90-69, Kanada vann Venezuela 80-73 og Puerto Rico vann Panama 108-67.
Keppni heldur svo áfram í kvöld og fá Bandaríkjamenn hvíld.
Leikir dagsins eru:
Mexíkó – Panama
Kanada – Virginíueyjar
Puerto Rico – Argentína
Brasilía – Venezuela