Undir 18 ára stúlknalið Íslands tapaði fyrir Danmörku með 60 stigum, 41-101. Leikurinn sá þriðji sem að liðið leikur á Norðurlandamótinu í Kisakallio í Finnlandi, en liðið hefur unnið einn og tapað tveimur.
Karfan spjallaði við leikmann Íslands, Ava Haraldsson, eftir leik í Kisakallio. Ava er uppalin í Bandaríkjunum, en af íslensku bergi brotin þar sem að faðir hennar er frá Íslandi. Kom hún til móts við íslenska liðið síðastliðinn vetur til þess að æfa og svo spila með þeim á þessu móti.