spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaAukasendingin velur karla og kvennalandslið Íslands

Aukasendingin velur karla og kvennalandslið Íslands

Aukasendingin kom saman og fór yfir fréttir vikunnar. Þjálfaraskipti Þórs Akureyri, einstakan árangur íslenskra leikmanna á meginlandinu og margt fleira.

Þá er farið yfir þau verkefni sem íslensku landsliðin eru að fara í í nóvember, þar sem að kvennalandsliðið er að fara til Grikklands og karlarnir til Slóvakíu.

Þá er skipst á að velja 15 leikmenn í bæði kvenna og karlalandsliðið, þar sem að bæði er til umræðu hvaða leikmenn séu líklegir til þess að vera valdir, sem og fer dágóður tími í að ræða hvaða leikmenn séu næstir inn í báðum liðum.

Þættinum stjórnar Davíð Eldur, honum til halds og trausts er góðvinur þáttarins Bryndís Gunnlaugsdóttir og í fyrsta skiptið sem gestur er mættur Ísak Máni Wium, þjálfari fyrstu deildarliðs ÍR.

Aukasendingin er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

Dagskrá:

01:20 – Létt hjal, fréttir vikunnar og atvinnumenn á meginlandinu

33:30 – Val á kvennalandsliði Íslands

01:01:30 – Val á karlalandsliði Íslands

Fréttir
- Auglýsing -