spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaAukasendingin: Kraftröðun fyrir Dominos deild kvenna

Aukasendingin: Kraftröðun fyrir Dominos deild kvenna

Dominos deild kvenna mun rúlla af stað þann 23. september með heilli umferð. Þar munu nýliðar Fjölnis taka á móti Snæfell, Breiðablik og Valur mætast í Smáranum, Skallagrímur heimsækir Hauka og í Keflavík eigast við heimakonur og KR.

Mikið hefur verið í gangi á leikmannamarkað sumarsins, en hér er hægt að skoða hvaða leikmenn hafa farið frá og komið til liðanna. Í síðustu upptöku af Aukasendingunni var kynnt kraftröðun fyrir deildina, það er hversu sterk liðin líta út á blaði í dag, sem er þó ekki spá fyrir tímabilið. Eiginleg spá Körfunnar verður tilkynnt síðar.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig styrkur liðanna er metinn á þessum tímapunkti, en hægt er að hlusta á Aukasendinguna hér enn neðar fyrir greinagóðan rökstuðning fyrir hvert sæti/lið fyrir sig.

1.Valur
2.Skallagrímur
3.Keflavík
4.Haukar
5.Fjölnir
6.Breiðablik
7.Snæfell
8.KR

Fréttir
- Auglýsing -