Aukasendingin ræddi við Ólaf Þór Jónsson þjálfara Ármanns um fréttir vikunnar, undanúrslitin í fyrstu deild karla, ákvarðanir sem teknar voru á þingi KKÍ og margt, margt fleira.
Ólafur tók við Ármanni fyrir síðasta tímabil og kom þeim upp í fyrstu deildina eftir frábæran árangur í annarri deildinni þar sem að liðið tapaði ekki leik. Á sínu fyrsta tímabili í fyrstu deildinni skilaði hann liðinu í 7. sætið, tveimur sigrum fyrir neðan Fjölni sem eru í síðasta sæti úrslitakeppninnar.
Aukasendingin er í boði Subway, Lykils og Kristalls.