Breiðablik lagði Þór í Höllinni á Akureyri í kvöld í Subway deild karla, 109-116. Eftir leikinn er Breiðablik í 8. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að Þór er í 12. sætinu með 2 stig.
Þór Tv spjallaði við August Emil Haas leikmann Þórs eftir leik í Höllinni. August var nálægt þrennunni í leiknum, skilaði 26 stigum, 7 fráköstum og 8 stoðsendingum á 34 mínútum spiluðum.