spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaAtkvæðamikill í öruggum sigri

Atkvæðamikill í öruggum sigri

Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu BC Prievidza í Slóvakíu í kvöld í FIBA Europe cup, 61-84.

Á tæpum 14 mínútum spiluðum í leiknum var Tryggvi Snær með 8 stig, 6 fráköst, stoðsendingu, 2 stolna bolta og 2 varin skot.

Eftir leikinn er Bilbao í efsta sæti J riðils keppninnar með þrjá sigra í jafn mörgum leikjum, en næst mæta þeir BC Balkan í Búlgaríu þann 30. október.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -