spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaAtkvæðamikill gegn Fenerbahce

Atkvæðamikill gegn Fenerbahce

Martin Hermannsson og Alba Berlin máttu þola tap gegn Fenerbahce í EuroLeague í kvöld, 71-78.

Á tæpum 26 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 13 stigum, 2 fráköstum, 5 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var bæði stiga og stoðsendingahæstur í liði Alba Berlin í leiknum.

Leikurinn var sá fjórði sem Alba Berlin leikur í EuroLeague þetta tímabilið, en eftir hann eru þeir í 13.-17. sætinu með einn sigur og þrjú töp.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -