Einn leikur fór fram í úrslitaeinvígi fyrstu deildar kvenna í kvöld.
Aþena lagði Tindastól í spennuleik í Síkinu. Með sigrinum náði Aþena að tryggja sér sigur í einvíginu 3-1 og munu þær því fylgja deildarmeisturum Hamars/Þórs upp í Subway deildina á næsta tímabili.
Frekari umfjöllun er væntanleg á Körfuna innan skamms.
Leikur dagsins
Fyrsta deild kvenna – Úrslit
Tindastóll 72 – 77 Aþena
Aþena vann einvígið 3-1