Undir 16 ára landslið drengja vann sinn fyrsta leik B-deild Evrópumótsins, 77-74 gegn Finnlandi. Þetta var fyrsti leikur Íslands í riðlakeppninni en liðið leikur í C-riðli.
Ísland mætir Póllandi á morgun í leik tvö á mótinu. Pólland vann Búlgaríu fyrr í dag og eru liðin því jöfn að stigum. Leikurinn hefst kl 16:45 að Íslenskum tíma og verður sýndir beint.
Fréttaritari Körfunnar í Bosníu spjallaði við leikmann liðsins Ástþór Svalason eftir að leik lauk í Sarajevo.